
Auglýsingar
þar sem kaupin gerast
Með smásölumiðlum í verslun ná vörumerki til viðskiptavina á réttum stað á réttum tíma
Fjölbreyttir auglýsingamiðlar fyrir þín markmið
Auglýsingar á skjáum í verslunum Bónus og Hagkaup um allt land. Möguleiki er að birta auglýsingu á skjáunum sem mynd eða myndband án hljóðs. Hver birting er 12 sekúndur og birtist hver auglýsingin á 2 mínútna fresti á öllum skjáum í öllum verslunum.
Skoða nánar skjáauglýsingar →Hljóðauglýsing er góð leið til að koma skilaboðum til viðskiptavina þar sem kaupákvörðun er tekin. Hljóðauglýsingar eru í boði í öllum verslunum Bónus og Hagkaups. Auglýsingin getur verið allt að 10-12 sekúndur að lengd og spiluð 10 eða 30 sinnum yfir daginn.
Skoða nánar útvarpsauglýsingar →Skjá- og útvarpsauglýsingar eru áhrifaríkari ef birtar eru samtímis í verslun og því bjóðum við þessa auglýsingamiðla saman á besta verðinu. Auglýsing á skjá og í útvarpi í verslun er góð leið til að ná skilaboðum til viðskiptavina þegar þeir versla.
Skoða nánar skjá og útvarpsauglýsingar →Árangur af smásölumiðlum
Rannsóknir sýna að tveir af hverjum þremur viðskiptavinum eru opnir fyrir nýjungum þegar þeir versla. Auglýsingar í verslunum geta því haft bein áhrif á kaupákvörðun viðskiptavina í verslunum.
eru opnir fyrir nýjungum þegar þeir versla
er sérstaklega opið fyrir nýjungum þau versla
hvaða vörur verða fyrir valinu
sýnileiki þar sem viðskiptavinir versla

Bónus er keðja lágvöruverslana sem hefur frá stofnun lagt áherslu á að bjóða viðskiptavinum um allt land hagkvæmt matvöruverð. Bónus er með 33 verslanir víðsvegar um landið. Nú geta vörumerki komið skilaboðum til viðskiptavina Bónus og styrkt þannig samtalið við neytendur um allt land. Stór hluti verslana Bónus bjóða skjáauglýsingar og allar verslanir eru með hljóðauglýsingar. Rúmlega 25 milljón viðskiptavinir heimsækja Bónus á hverju ári.
Hagkaup er leiðandi stórverslun sem býður breytt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, snyrtivöru, leikföngum og annarri sérvöru. Hagkaup starfrækir 7 verslanir sem og öfluga netverslun. Hagkaup leggur áherslu á þægindi og þjónustu og eru tvær verslanir Hagkaups, í Skeifunni og Garðabæ, opnar allan sólahringinn. Allar verslanir Hagkaups bjóða hljóð- og skjáauglýsingar. Um 9 milljón viðskiptavina heimsækja verslanir Hagkaups.
Frásögn viðskiptavina
sem hafa auglýst hjá Högum miðlum

Við vorum spennt að kynna nýja vöru fyrir viðskiptavinum og vorum því með þeim fyrstu að prófa auglýsingar á skjáum í verslunum Hagkaups.

Við vorum með fyrstu viðskiptavinum Haga miðla og náðum sterkum skilaboðum til fjölda viðskiptavina á háannatíma í verslun.
Þín skilaboð á réttum stað á réttum tíma.
Sendu okkur skilaboð og sérfræðingar okkar svara erindi þínu hratt og vel. Við getum líka aðstoðað við að velja auglýsingamiðla sem henta þínum markmiðum.
- Skjáauglýsingar í verslunum
- Útvarpsauglýsingar í verslunum
- Sérsniðnar birtingar eftir þörfum
Hleð formi...