Skip to content

Í Augsýn viðskiptavina í verslun

Uppbókað er á viðburðinn

Dagsetning
17. apríl 2026
Tímasetning
13:00 – 16:00
Staður
Grand hótel Reykjavík
Kona að versla í Hagkaup
Um viðburðinn

Smásölumiðlun skapar ný tækifæri til að ná til viðskiptavina í verslun

Smásölumiðlun (e. retail media) hefur á undanförnum árum notið aukinna vinsælda og er nú einn hraðast vaxandi auglýsingamiðill heims. Hagar bjóða samstarfsaðilum, sérfræðingum í smásölu, sölu og markaðssetningu á viðburð þar sem farið verður yfir nýjar leiðir til að miðla skilaboðum til viðskiptavina í verslun. Fjallað verður um hvernig auglýsingar í verslun, þar sem kaupin eiga sér stað, skapa tækifæri fyrir vörumerki til vaxtar og styrkja samtalið við neytendur.

Einn helsti sérfræðingur Norðurlanda á sviði smásölumiðlunar deilir reynslu sinni og kynnir árangur vörumerkja af notkun auglýsingamiðla í verslunum. Einnig munu sérfræðingar í smásölu fjalla um þessa nýju leið í markaðssetningu og hvernig samskipti við viðskiptavini og aukinn sýnileiki geta haft áhrif á sölu.

Að lokum taka reynslumiklir aðilar úr smásölu- og auglýsingageiranum þátt í umræðum og velta fyrir sér hvernig auglýsendur geta nýtt auglýsingamiðla í verslun til að ná betra samtali við viðskiptavini, á réttum stað og á réttum tíma.

Takmarkað sætaframboð er á viðburðinn og því hvetjum við áhugasama til að skrá sig og tryggja sér sæti.

Dagskrá · 17. apríl 2026

Dagskrá

13:00
Erindi
Nútíma tækni og miðlar

Bergur Ebbi opnar viðburðinn á hugvekju um auglýsingar, miðla og framtíðina.

Bergur Ebbi
Bergur Ebbi
Fundarstjóri
13:15
Erindi
Smásölumiðlun og tækifærin í íslenskri verslun

Finnur fer yfir í erindi sínu hvað smásölumiðlun (e. retail media) er og hvernig þjónustan hefur þróast á alþjóðamörkuðum. Hann fjallar um tækifærin fyrir birgja að auka sýnileika vörumerkja og hvernig auglýsingar í verslun geta styrkt samstarf birgja og smásala enn frekar og skapað tækifæri til vaxtar.

Finnur Oddsson
Finnur Oddsson
Forstjóri — Hagar
13:45
Erindi
Að breyta smásölu í miðil: lærdómur úr vegferð Matas

Matas Group er leiðandi smásölufyrirtæki á Norðurlöndum á sviði fegurðar og vellíðunar og þjónar milljónum viðskiptavina í gegnum verslanir sínar og stafræna miðla. Kathrine Rønhof Karstensen er yfirmaður smásölumiðlunar (e. retail media) hjá Matas. Hún hefur gegnt lykilhlutverki við að byggja upp heildstæða miðlaþjónustu sem spannar allt markaðsferlið (e.funnel) og er þjónustan drifin áfram af gögnum og endurgjöf viðskiptavina. Í þessu erindi segir hún frá þróuninni á auglýsingasölu hjá Matas frá árinu 2019 til dagsins í dag. Hún segir frá því hvernig stafrænar lausnir hafa gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu þjónustunnar og hvernig hægt er að bjóða lausnir sem ná yfir allt markaðsferlið. Einnig deilir hún með gestum árangurssögum þekktra vörumerkja í smásölu og útskýrir hvers vegna þau hafa náð auknum vexti með þjónustu Matas.

Kathrine Rønhof Karstensen
Kathrine Rønhof Karstensen
Framkvæmdastjóri — Matas Media
14:30
Erindi
Miðlar sem skila viðskiptum

Sesselía kynnir nýja þjónustu Haga miðla og fer yfir markaðslegu tækifærin fyrir auglýsendur sem vilja auka sýnileika þar sem að kaupákvarðanir eru teknar. Hún kynnir þá auglýsingamiðla sem Hagar miðlar bjóða ásamt því að fara yfir árangur viðskiptavina sem hafa nýtt sér miðlana.

Sesselía Birgisdóttir
Sesselía Birgisdóttir
Forstöðumaður — Hagar miðlar
14:50
Pallborð
Tækifærin í markaðssetningu á íslenskum markaði
Anna Fríða Gísladóttir
Anna Fríða Gísladóttir
Framkvæmdastjóri markaðssviðs
Guðjón Ólafsson
Guðjón Ólafsson
Framkvæmdastjóri birtinga
Ari Fenger
Ari Fenger
Forstjóri
Eva Laufey Kjaran
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Framkvæmdastjóri upplifunar- og markaðsmála
15:15
Spjall
Veitingar og spjall

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar og tækifæri fyrir spjall.

Staðsetning
Grand hótel Reykjavík
Heimilisfang
Háteigsvegur 1, 105 Reykjavík
Dagsetning
17. apríl 2026
Tímasetning
13:00 – 16:00
Opna í Google Maps

Uppbókað er á viðburðinn

Áhugasamir um þjónustu Haga miðla geta sent okkur fyrirspurn og við svörum hratt og vel

Senda fyrirspurn